Meðferðir
Dáleiðsla & Heilun
Meðferðir & Þjónusta í boði
MEÐFERÐ 1:
ÁFALLAMEÐFERÐ (2-3 skipti)
Meðferð þar sem unnið er í áföllum (litlum og stórum) sem viðkomandi hefur orðið fyrir frá fæðingu. Meðferðin hentar öllum sem eru að glíma við mörg einkenni t.d. kvíða, streitu, ótta, lítið sjálfstraust, reiði, svefntruflanir, líkamlega verki eða eru stignir inn í kulnun.
Meðferðin gengur út á það að losa um þessar sársaukafullu og óþægilegu tilfinningar sem festast í áföllunum okkar. Sjá nánari útskýringar á áfalli hér: Áfall – Atburður
Meðferðinni er skipt upp í þrjú skipti eða þrjá tíma þar sem hver tími er 2-2,5klst í senn. Það er miðað við 1-2 vikur á milli tíma eða eftir samkomulagi.
Athugið: Það er ekki nauðsynlegt að skuldbinda sig í alla meðferðina. Það er hægt að byrja á fyrsta tíma og ákveða í framhaldi hvort viðkomandi vilji klára meðferðina eða t.d. taka eingöngu fyrsta og annan tíma.
Athugið að ýmis stéttarfélög eru að styrkja eða greiða niður þessa meðferð. Endilega hafðu samband við þitt stéttarfélag.
TÍMI 1 – SAMTAL & UNDIRBÚNINGUR
Farið yfir áfallasöguna og þau einkenni og hegðun sem viðkomandi er að glíma við. Dáleiðslumeðferðin og hlutverk undirmeðvitundarinnar er útskýrð til hlítar.
Tímalengd: 2klst Verð: 25.000kr
TÍMI 2 – DÁLEIÐSLA
Tíminn hefst á stuttu samtali og farið í dáleiðsluna. Dáleiðslan sjálf fer fram liggjandi á bekk og því gott að mæta í þægilegum fatnaði eða eins og þér finnst best.
Tímalengd: 2klst Verð: 25.000kr
TÍMI 3 – ANDLEGT SAMTAL – DÁLEIÐSLA & HEILUN
Samtal um andleg málefni og kennsla í andlegri tengingu (ef áhugi er fyrir því). Farið er í dáleiðslu inn í andlega vídd þar sem kennsla fer fram. Að lokum er farið í fallega reiki- og orkustöðvaheilun. Stutt samtal í lokin.
Tímalengd: 2klst Verð: 25.000kr
Tími 3 – hentar einnig þeim sem eru komnir áleiðis í sinni sjálfsvinnu og langar að fá kennslu og leiðsögn í sínu andlega ferðalagi.
MEÐFERÐ 2:
FYRRI LÍF eða FYRRI REYNSLA – DÁLEIÐSLA
Past life Regression Therapy – Life between Lives.
Dáleiðslan hentar þeim sem hafa áhuga á andlegum málefnum og vilja skyggnast inn í fyrri líf og fyrri reynslu – fá betri skilning á lærdómnum og tilgangi lífsins.
Stuðst er við aðferðir Brian Weiss – Dr. Michael Newton og Dolores Cannon.
Athugið: Þessi meðferð er eingöngu fyrir þá sem hafa farið áður í djúpa dáleiðslu.
Tímalengd: 3klst Verð: 30.000kr
_______________________________________
ÖNNUR ÞJÓNUSTA Í BOÐI:
DÁLEIÐSLA FYRIR FORVITNA
Langar þig að vita meira um dáleiðslu og fá að upplifa einfalda dáleiðslu og komast að því hvort dáleiðsla sé eitthvað fyrir þig?
Athugið: Þetta er ekki meðferð – þetta er eingöngu innsýn og upplifun hvernig dáleiðsla virkar á þig. Viðkomandi er leiddur í létta dáleiðslu og farið yfir hlutverk undirmeðvitundarinnar.
RÁÐGJÖF – SAMTAL
Samtal um lífsins verkefni. Ef þú ert á krossgötum og langar að eiga samtal og fá ráðgjöf um framtíðina.
__________________________________
SKRÓP
Við áskiljum okkur rétt að taka gjald fyrir meðferðartíma sem ekki er afbókaður með 48klst fyrirvara.
Skrópgjald: 8.000kr




Til að bóka tíma þá vinsamlegast sendið póst á netfangið: hugaroskir@hugaroskir.is
Sími: 620-1270
Opnunartími: milli 8:00 – 17:00 (ath. ekki er bókað í meðferðartíma eftir kl. 14:00).
Athugið að allar meðferðir og þjónusta eru einnig í boði í gegnum netið eða Zoom fundarkerfið. Hentugt fyrir þá sem búa á landsbyggðinni eða erlendis, eða eru ekki ferðafærir. Ath. þú þarft ekki að hafa neina þekkingu á þessi kerfi en gott að eiga heyrnatól, þó ekki nauðsynlegt.
Ef þú ert með spurningar eða einhverjar vangaveltur þá endilega sendu mér skilaboð eða hringdu og ég hef samband við fyrsta tækifæri.
Athugið að ýmis stéttarfélög eru að styrkja eða greiða niður þessar meðferðir.
Upplýsingar
Heimilisfang:
Stórhöfða 21 - 2.hæð - 110 Reykjavík (sama hús og Flísabúðin)
Gengið upp eina hæð, einnig er lyfta í húsinu.
Athugið að allar meðferðir og þjónusta eru einnig í boði í gegnum netið eða Zoom fundarkerfið. Tilvalið og hentugt fyrir þá sem búa á landsbyggðinni eða erlendis, eða eru ekki ferðafærir. Ath. þú þarft ekki að hafa neina þekkingu á Zoom kerfinu en gott að eiga heyrnatól, þó ekki nauðsynlegt.
Opnunartími: milli 8:00 - 17:00 (ath. ekki er bókað í meðferðartíma eftir kl. 14:00).
Netfang: hugaroskir@hugaoskir.is
Sími: 620-1270